Víða hálka á Norðurlandi vestra
Samkvæmt vef Vegagerðarinnar er á þjóðvegi 1 í Húnaþingi vestra að Staðarskála og áfram yfir Holtavörðuheiði, á Vatnsskarði og Öxnadalsheiði. Þá eru hálkublettir á Þverárfjalli og víða í Húnavatnssýslum. Aðrar leiðir í Skagafirði og á Skaga eru greiðfærar.
Veðurstofan spáir suðvestan 13-20 og él, en snýst í hvassa norðanátt með snjókomu á annesjum. Norðan 8-15 og snjókoma eða él síðdegis, frost 0 til 5 stig.
Veðurhorfur næstu daga, fyrir Strandir og Norðurland vestra:
Á laugardag:
Norðan 10-18 og snjókoma eða él, hvassast við NA-ströndina. Hægari vindur og bjart veður sunnantil á landinu. Frost 3 til 12 stig.
Á sunnudag:
Norðan 8-15 m/s og snjókoma eða él á Vestfjörðum og N-landi, hægari og úrkomulítið annars staðar. Áfram kalt í veðri.
Á mánudag:
Norðvestlæg átt og snjókoma á norðanverðu landinu, en þurrt að mestu syðra. Frost 0 til 8 stig.
Á þriðjudag og miðvikudag:
Breytileg átt, víða él og frost um allt land.