Víða hálka á vegum
Á Norðurlandi vestra eru vegir auðir í Húnavatnssýslum. Hálkublettir eru á Þverárfjalli og Vatnsskarði en hálka á Öxnadalsheiði. Hálka er á öðrum leiðum, samkvæmt upplýsingum Vegagerðarinnar.
Á Ströndum og Norðurlandi vestra er Austlæg átt, 3-8 m/s og bjartviðri. Frost 1 til 7 stig. Samkvæmt spá Veðurstofu Íslands verður hæg breytileg átt og víða bjart veður á morgun, en suðaustan 5-10 m/s með SV-ströndinni og stöku skúrir eða él. Frost 0 til 14 stig, kaldast í innsveitum NA-lands.
Veðurhorfur á landinu næstu daga:
Á laugardag:
Sunnan 13-18 m/s með slyddu og síðar rigningu, en úrkomulítið NA-til á landinu. Vestlægari síðdegis með skúrum og síðar éljum á V-verðu landinu. Hiti 2 til 7 stig um tíma, en kólnar aftur um kvöldið.
Á sunnudag:
Suðvestan 8-13 m/s og él, en léttskýjað A-til á landinu. Hvessir síðdegis, suðvestan hvassviðri eða stormur undir kvöld, en hægari austlæg átt N-lands. Rigning, slydda eða snjókoma. Hiti kringum frostmark.
Á mánudag:
Vestan hvassviðri S-lands, annars yfirleitt hægari vindur. Úrkomulítið A-lands, en víða snjókoma eða slydda annars staðar á landinu. Hiti áfram nærri frostmarki.
Á þriðjudag:
Norðanátt með éljagangi, en léttir til á S-verðu landinu. Frost 0 til 5 stig.
Á miðvikudag:
Útlit fyrir hæga breytileg átt. Bjart veður og kalt.