Víða hálka og hálkublettir
Það er hálka eða hálkublettir á flestum vegum á Norðurlandi, víðast blettir í Húnavatnssýslum en öllu meiri hálka þar fyrir austan, jafnvel snjóþekja þar sem éljar. Þoka er á Öxnadalsheiði, samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni.
Á Ströndum og Norðurlandi vestra er norðaustan 5-13 og él eða slydduél, einkum á Ströndum. Samkvæmt spá Veðurstofunnar verður úrkomuminna síðdegis. Hægari í kvöld, en norðaustan 5-10 og úrkomulítið á morgun. Hiti um frostmark.
Veðurhorfur á landinu næstu daga:
Á laugardag:
Vaxandi austanátt og þykknar upp sunnantil á landinu, 10-18 m/s og fer að rigna syðst seint um kvöldið. Hægari norðlæg átt og stöku él nyrðra. Hiti 0 til 4 stig sunnantil, en annars vægt frost.
Á sunnudag:
Austan 10-18 m/s og rigning einkum S- og SA-lands, en þurrt að kalla norðantil fram undir kvöld. Hiti 2 til 7 stig, en hlánar smám saman fyrir norðan.
Á mánudag, þriðjudag, miðvikudag og fimmtudag:
Útlit fyrir suðaustanátt og rigningu eða skúri og fremur milt, en lengst af þurrt norðanlands.