Víða hálka og skafrenningur

Á Norðvesturlandi er hálka og eitthvað um skafrenning. Hálkublettir og skafrenningur er á Þverárfjalli og þæfingur og stórhríð er á Öxnadalsheiði. Á heimasíðu Vegagerðarinnar kemur fram að él eða snjókoma verður víða í útsveitum Norðanlands, en þar rofar til með sunnanátt um og upp úr hádegi.

Samkvæmt spá Veðurstofu Íslands er suðaustan 10-15 m/s og snjókoma eða él, en hægari og rofar til eftir hádegi, sem fyrr segir. Fer aftur að snjóa seint í kvöld, en norðaustan 10-15 og slydda eða snjókoma á morgun. Frost 1 til 6 stig.

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á laugardag:
Norðan 18-28 m/s NV-til, en annars hægari. Talsverð snjókoma eða slydda á N-verðu landinu og á Austurlandi, slydda SA-lands, en annars úrkomulítið. Kólnandi veður. Dregur úr vindi og ofankomu NV-til um kvöldið, en hvessir þá A-lands.

Á sunnudag:
Norðan 10-23, hvassast NA-til framan af degi. Snjókoma eða él N-til, en úrkomulítið S-lands. Frost 0 til 8 stig.

Á mánudag (gamlársdagur):
Norðan og norðvestan 5-13. Él við N- og A-ströndina, en annars skýjað með köflum. Frost 0 til 8 stig.

Á þriðjudag:
Vestlæg átt, 3-8. Stöku él V-til en annars skýjað að mestu. Frost 0 til 12 stig, kaldast inn til landsins.

Á miðvikudag:
Útlit fyrir austan átt með snjókomu eða slyddu sunnanlands en annars úrkomulítið og hlýnar heldur í veðri.

Fleiri fréttir