Víða ófært og varað við stormi

Veðurstofan hefur gefið út enn eina stormviðvörunina en á Norðvestan verðu landinu er spáð norðan 15-25 m/s og snjókomu, hvassast á annesjum.

Síðdegis dregur úr vindi og ofankomu. Í kvöld lægir og léttir til. Veðurhorfur á morgun er suðaustan 8-13 m/s og snjókomu. Frost 1 til 6 stig.

Samkvæmt heimasíðu Vegagerðarinnar er ófært um mest allar Húnavatnssýslur, þungfært yfir Vatnsskarðið, krap og snjór er í Langadal að Skagaströnd og þæfingur á Skaga og yfir Þverárfellið.

Krap og snjór er frá Sauðárkróki að Varmahlíð og fram Lýtingsstaðahrepp. Þæfingur er frá Sauðárkróki að Hofsósi, Hegranesi og fram Blönduhlíðina. Ófært er norður frá Hofsósi út í Fljót. Hált er frá Varmahlíð að Silfrastöðum.

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á föstudag:
Gengur í suðaustan 15-20 m/s með snjókomu eða slyddu S- og V-lands, en síðar rigningu. Hægari og dálítil snjókoma NA-lands um kvöldið. Hiti 0 til 5 stig S-til, en frost annars 0 til 10 stig, mest NA-lands.

Á laugardag:
Suðaustan 10-15 m/s og súld eða rigning, en úrkomulítið NA-lands. Hiti 3 til 10 stig, hlýjast fyrir norðan.

Á sunnudag:
SV-læg átt með rigningu SA-lands, en annars skúrum eða éljum. Kólnandi veður.

Á mánudag, þriðjudag og miðvikudag:
Útlit fyrir suðlæga átt, úrkomulítið og fremur milt veður.

 

Fleiri fréttir