Víða verið að flýta göngum
Víða á Norðurlandi vestra eru bændur að leggja upp í göngur, um það bil 10 - 20 dögum fyrr en áætlað var, en algengustu réttardagar á svæðinu eru 6. - 7. og 14. - 15. september. Eins og fram hefur komið í fréttum hafa almannavarnir varað við óveðri á föstudag og laugardag sem útlit er fyrir að verði síst betra en hretið sem gekk yfir norðan- og norðaustanvert landið í kringum 10. september í fyrra.
Feykir hafði samband við Jónínu Stefánsdóttur, fjallaskilastjóra í fyrrum Staðarhreppi í Skagafirði, um níuleytið í morgun og spurði hana um göngur þar í sveit. „Þeim verður flýtt, það verður byrjað á morgun og haldið áfram á fimmtudag og líklega réttað á fimmtudagskvöldið, það verður þó að sjá hvernig staðan verður þegar við komum að á fimmtudagskvöldið.“ Aðspurð sagði Jónína að vel hafi gengið að manna göngur miðað við svona aðstæður.
Elín R. Líndal, sveitarstjórnarmaður í Húnaþingi vestra, segir að þar hafi sveitarstjórn og fjallskilastjórar hist í gær og hefði fjallskilastjórum verið falið að kanna stöðuna á sínum svæðum. Kallað hefði verið eftir staðarspá frá Veðurstofunni sem ætti að berast þeim nú á tíunda tímanum. Bjóst hún við að ákvörðun lægi fyrir um hádegið í dag. „Þarna er um að ræða allt að fjögurra daga göngur, á Víðidalstunguheiði er vaninn að fara upp á mánudegi og koma niður á föstudegi. Og þar og í Miðfirði og Hrútafirði er á annað hundrað manns sem þarf til að manna göngur svo það er meira en að segja það að manna göngur með litlum fyrirvara,“ sagði Elín og bætti því við ljóst að væri að það yrði alla vega ekki hreinsmalað.
Gauti Jónsson, fjallskilastjóri í Laxárdal, Langadalsfjöllum og Tröllabotnum í Austur-Húnavatnssýslu, var að leggja í göngur þegar blaðamaður hafði samband um hálftíu leytið í morgun. Sagði Gauti að merkilega vel hefði gengið að manna þær, þrátt fyrir lítinn fyrirvara. Hann reiknaði með að flestum göngum í sýslunni yrði flýtt en fjallaskilastjórar þar, eins og annars staðar á Norðurlandi, funduðu í gærkvöldi. „Einhverjir ætluðu þó að fylgjast með spám fram undir hádegi og taka ákvörðun eftir það,“ sagði Gauti.
Almennt eru bændur á svæðinu í viðbragðsstöðu og eftir því sem Feykir kemst næst munu flestir fjallskilastjórar og aðrir sem að málum koma taka ákvörðun í dag um hvort göngum verði flýtt. Eðli málsins samkvæmt situr hretið í fyrrahaust í mönnum og ekki er talið áhættunnar virði að bíða, sé útlit fyrir að verstu spár gangi eftir.