Viðburðarík aðventa
Aðventan er að vanda viðburðarík á Norðurlandi vestra. Þessa dagana fara fram jólatónleikar í tónlistarskólum Skagafjarðar og Húnavatnssýslna. Aðventustundir eru haldnar í flestum kirkjum og fyrir tónlistarunnendur er úr nægu að moða. Þá eru jólahlaðborðin í algleymingi en fjöldi veitingastaða og ferðaþjónustuaðila bíður upp á slík hlaðborð þar sem fjölbreytnin ræður ríkjum.
Jóladagskrána í Skagafirði í ár er að finna á vef sveitarfélagsins en einnig eru viðburðir jafnan auglýstir í sjónvarpsdagskrám viðkomandi svæðis, en tengla í þær er að finna hér á vefnum.
Skólarnir standa líka fyrir ýmsum uppákomum tengdum jólum og aðventu. Framhaldskólanemar eru óðum að komast í jólafrí og prófum að ljúka hjá þeim en grunnskólar fara í jólafrí kringum 20. desember.