Víðförull rauðmagi með rafeindamerki

BioPol ehf á Skagaströnd og Hafrannsóknastofnun hafa átt gott samstarf um árabil, m.a. í kringum merkingar á hrognkelsum. Í mars sl. var farið í ferð í þeim tilgangi, um borð í Bjarna Sæmundssyni, og voru fjórir rauðmagar merktir með rafeindamerki frá Stjörnu Odda og þeim sleppt aftur.

Á heimasíðu BioPols segir að merki þessi safni upplýsingum um dýpi og hitastig á þeim stað þar sem einstaka fiskar hafa haldið sig. Á þann hátt geta merkin gefið mikilvægar upplýsingar um hegðun og atferli einstakra fisktegunda. Eini gallinn er að endurheimta þarf merkin til þess að hægt sé að nálgast upplýsingarnar.

„Þau merku tíðindi gerðust í byrjun apríl að einn af þessum rauðmögum birtist aftur um borð í Sigurey ST 22 frá Drangsnesi. Það er Halldóri Loga Friðgeirssyni skipstjóra og áhöfn hans að þakka að hægt var að nálgast þau forvitnilegu gögn sem hægt var að lesa af merkinu,“ segir á heimasíðunni en ekki er vitað til þess að upplýsingum varðandi ferðir rauðmaga hafi áður verið aflað með þessum hætti.

 

Á línuritinu má sjá rauða línu sem endurspeglar hitastig sjávar og bláa línu sem gefur til kynna það dýpi sem fiskurinn hélt sig á. Myndin sýnir að fiskurinn hefur ferðast mjög mikið upp og niður í vatnssúlunni allt frá því að vera töluverðan tíma nánast í yfirborði og síðan niður á um 280 metra dýpi. Í lokinn má sjá að fiskurinn festist í neti á tæplega 3. metra dýpi og er síðan dreginn upp. Áhrif sjávarfalla má greina eftir að fiskurinn festist í netinu. „Á línuritinu má sjá rauða línu sem endurspeglar hitastig sjávar og bláa línu sem gefur til kynna það dýpi sem fiskurinn hélt sig á. Myndin sýnir að fiskurinn hefur ferðast mjög mikið upp og niður í vatnssúlunni allt frá því að vera töluverðan tíma nánast í yfirborði og síðan niður á um 280 metra dýpi. Í lokinn má sjá að fiskurinn festist í neti á tæplega 3. metra dýpi og er síðan dreginn upp. Áhrif sjávarfalla má greina eftir að fiskurinn festist í netinu.“

 

 

Fleiri fréttir