Viðgerð á stofnlögn lokið
Í gær var lokið bráðabirgðaviðgerð á stofnlögn vatnsveitunnar á Blönduósi. Lögnin bilaði í gærmorgun og var fyrirséð að loka þyrfti fyrir kalda vatnið. Til þess kom þó ekki þar sem viðgerð tókst áður.
Fullnaðarviðgerð verður gerð síðar í vikunni.
