Viðhorf til iðnaðaruppbyggingar við Hafursstaði kannað

Hafursstaðir í Skagabyggð. Mynd: KSE
Hafursstaðir í Skagabyggð. Mynd: KSE

Á ársþingi SSNV í lok október kom fram í ræðu framkvæmdastjóra samtakanna að samþykkt hefði verið að framkvæma íbúakönnun á starfssvæði samtakanna. Í könnuninni var spurt um ýmsa búsetuþætti á svæðinu. Einnig var spurt um viðhorf til iðnaðaruppbyggingar við Hafursstaði. Fram kom að verið væri að vinna úr svörum við könnunni og niðurstöður hennar yrðu kynntar fljótlega.

Á þinginu var einnig samþykkt eftirfarandi ályktun varðandi iðnaðarbyggingu við Hafursstaði:

Sveitarfélögin í Austur-Húnavatnssýslu, ásamt Húnaþingi vestra og Sveitarfélaginu Skagafirði, hafa lýst vilja til samvinnu um iðnaðaruppbyggingu við Hafursstaði í Austur-Húnavatnssýslu. Í ljósi  mikillar og stöðugrar fækkunar íbúa landshlutans er þýðingarmikið að sveitarfélögin fái stuðning hins opinbera til þess að kanna þá kosti sem uppi geta verið í stóriðjumálum og henta landshlutanum, m.a. með tilliti til náttúrugæða. Því ber að þakka framlag til þessa máls á fjárlögum ársins 2016 en jafnframt að krefja stjórnvöld um áframhaldandi og aukinn beinan fjárstuðning við uppbyggingu iðnaðarkosta í landshlutanum, sbr. þingsályktunartillögu 10/143 sem samþykkt var 15. janúar 2014. Gerð er skýlaus krafa um að öll orkuöflun í landshlutanum verði nýtt til atvinnueflingar á svæðinu.

Fleiri fréttir