Viðræðum um Hjallastefnu frestað
Á fundi sveitarstjórnar Skagastrandar sl. mánudag var tekið fyrir bréf frá Margréti Pálu Ólafsdóttur, framkvæmdastjóra Hjallastefnunnar. Við afgreiðslu málsins var ákveðið að fresta umræðu þau áform að taka upp Hjallastefnuna, enda stutt í kosningar og eðlilegt þykir að komandi sveitarstjórn taki málið fyrir.
Lýsti sveitarstjórn yfir vonbrigðum með að ekki hefði tekist að ljúka samningagerð við Hjallastefnuna.
Í bréfinu þakkar Margrét sveitarstjórn, skólafólki og foreldrum á Skagaströnd umræður um skólamál á liðnum vetri og þann áhuga sem fjölmargir aðilar hafa sýnt á samstarfi við Hjallastefnuna. Með vísan þess að kosningar standa fyrir dyrum telji hún mikilvægt að ný sveitarstjórn hafi frjálsar hendur um málefni skólasamfélagsins á næstu fjórum árum. Því telji hún rétt að Hjallastefnan dragi sig í hlé og óskar skólasamfélaginu gæfu og gengis.
Bréfi Margrétar Pálu fylgdi niðurstaða skoðanakönnunar sem foreldrafélög leikskólans og grunnskólans létu gera. Þar kemur fram að meirihluti foreldra leikskólabarna vilja Hjallastefnuna inn í leikskólann.
Sveitarstjórn lýsti yfir vonbrigðum með að ekki hefði tekist á ljúka málinu en tók þó undir þau sjónarmið að eðlilegra væri að nýa sveitarstjórn tæki ákvörðun um slíkan samning. Lýsti sveitarstjórn ánægju með framtakssemi og dugnað foreldrafélaga skólanna við gerð skoðanakönnunarinnar. Samþykkt var að fela sveitarstjóra að taka saman greinargerð um feril Hjallastefnumálsins og senda sveitarstjórn.