Viðtalstímar menningarfulltrúa
feykir.is
Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla
27.01.2014
kl. 08.55
Vegna auglýsinga Menningarráðs Norðurlands vestra um Verkefnastyrki og Stofn- og rekstrarstyrki verður menningarfulltrúi Norðurlands vestra með viðtalstíma á þremur stöðum á Norðurlandi vestra næstu daga.
Á morgun, þriðjudaginn 28. janúar, verður hann til viðtals á Skrifstofu SSNV á Faxatorgi 1 (efri hæð) á Sauðárkróki, frá kl. 13-17. Á miðvikudaginn verður hann á skrifstofu SSNV að Höfðabraut 6 á Hvammstanga frá kl 13- 16. Á fimmtudaginn verður hann svo á skrifstofu SSNV við Hnjúkabyggð 33 á Blönduósi frá kl 13-16.