Viðtalstímar vegna menningarstyrkja

Menningarráð Norðurlands vestra hefur auglýst eftir umsóknum um verkefnastyrki á grundvelli menningarsamnings mennta- og menningarmálaráðuneytis og iðnaðarráðuneytis við SSNV. Að því tilefni verður Ingibergur Guðmundsson menningarfulltrúi með viðtalstíma í Skagafirði nk. mánudag, þann 5. mars kl. 13-17, að Faxatorgi 1 á Sauðárkróki – efri hæð.

Tilgangur styrkjanna er að efla menningarstarf og menningartengda ferðaþjónustu á Norðurlandi vestra en Menningarráð Norðurlands vestra hefur ákveðið að hafa eina úthlutun á árinu 2012, með umsóknarfresti til og með 15. mars. Hér má finna nánari upplýsingar um styrkinn.

Fleiri fréttir