„Viðtökurnar hafa verið alveg framúrskarandi“

Ragnar Z. Guðjónsson og Auðunn Steinn Sigurðsson eru mennirnir á bakvið Húnahornið, auk Berglindar Björnsdóttur. Mynd/Húnahornið.
Ragnar Z. Guðjónsson og Auðunn Steinn Sigurðsson eru mennirnir á bakvið Húnahornið, auk Berglindar Björnsdóttur. Mynd/Húnahornið.

Þann 14. júní sl. voru 15 ár liðin frá því fyrsta fréttin var birt á vefmiðlinum Húnahornið, eða Húni.is. Óslitið síðan hafa verið sagðar fréttir af mannlífi, atvinnulífi, framkvæmdum og framförum í héraðinu, eflingu byggðar og öllu því sem gerir Húnavatnssýslu sérstaka að lifa og starfa í eða heimsækja sem ferðamaður. „Það hefur ýmislegt gengið á sl. 15 ár en ekkert svo stórt að það hafi haft áhrif á vinnuna við vefinn. Vissulega höfum við rætt það nokkrum sinnum hvort að komið væri nóg, hvort að þörfin væri fyrir hendi o.s.frv. en á meðan okkur finnst þetta svona skemmtilegt og við höfum tíma, þá höldum við áfram,“ sagði Ragnar Z, Guðjónsson, ábyrgðar- og fyrirsvarsmaður Húnahornsins, í samtali við Feyki.  

Ragnar stofnaði Húnahornið ásamt, Guðmundi St. Ragnarssyni og Ásgeiri Haukssyni, þegar þeir félagar voru farnir að þyrsta í fréttir frá heimahögunum en þeir eru allir brottfluttir Blönduósingar.

„Hugmyndin að stofna fréttavefmiðil fyrir Blönduós og nágrenni varð til í samtali þriggja brottfluttra Blönduósinga á vormánuðum 2001 í Reykjavík. Ástæðan var sú að okkur fannst skortur á fréttum og upplýsingum um gömlu heimabyggðina okkar. Venjan var að hringja norður til ættingja og vina og spyrja frétta. Kviknaði þá hugmyndin af vefmiðli sem segði fréttir frá svæðinu svo brottfluttir Blönduósingar og aðrir sem tengdust svæðinu gætu fylgst með sem og heimamenn sjálfir auðvitað,“ rifjaði Ragnar upp. 

Guðmundur Karl Ellertsson starfaði með þeim félögum fyrstu árin. Fljótlega bættist Auðunn Steinn Sigurðsson í hópinn og situr hann nú í ritstjórn miðilsins ásamt þeim Ragnari og Ásgeiri. Seinna tók Magdalena Berglind Björnsdóttir, eiginkona Auðuns, jafnframt upp pennann en hjónin eru bæði búsett á Blönduósi.

Ragnar sagði viðtökurnar við vefmiðlinum hafa verið alveg framúrskarandi og ætli það sé ekki helsta ástæðan fyrir að vefurinn sé búinn að vera í loftinu í 15 ár. Hann sagði að í fyrstu hafi þau fundið fyrir svolítilli tortryggni hjá sumum sem hafi svo horfið fljótt.

Ragnar segir nánar frá upphafsárum Húnahornsins í viðtali við Feyki sem kemur út í dag, hvernig gengið hefur að halda vefnum lifandi og frásagnir af skemmtilegum atvikum frá undanförnum 15 árum.

Fleiri fréttir