Viðvörun: Varað við stormi
Búist er við hvassviðri eða stormi (15-23 m/s) V-til seinnipartinn í dag, en um mest allt land í kvöld og nótt og eru horfur á roki (23-28 m/s) um tíma allra nyrst á landinu í nótt, samkvæmt spá Veðurstofunnar. Búist er við mikilli úrkomu á NV-landi og Tröllaskaga í kvöld og nótt, rigning á láglendi, en snjókoma ofan 150-250 metra yfir sjó.
Spáin fyrir Strandir og Norðurland vestra hljómar svo:
Sunnan og síðar suðvestan 5-10 m/s og rigning. Vaxandi norðvestan- og vestanátt síðdegis, 15-23 m/s undir kvöld. Talsverð eða mikil rigning á láglendi, en snjókoma í meira en 150-250 metra hæð yfir sjó. Vestan 20-25 nyrst um tíma í nótt og fram undir morgun. Dregur mjög úr úrkomu og vindi eftir hádegi á morgun. Kólnandi, hiti 1 til 6 stig seinnipartinn í dag.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á sunnudag:
Sunnan og suðaustan 8-13 m/s og rigning, en þurrt að kalla NA-til. Hiti 7 til 13 stig.
Á mánudag og þriðjudag:
Suðvestan og vestan 8-15 m/s, hvassast syðst. Víða rigning eða skúrir, en bjartviðri A-lands. Hiti 5 til 12 stig, hlýjast A-ast.
Á miðvikudag:
Norðaustlæg átt, 8-13 m/s og rigning á Vestfjörðum, en annars 3-10 og stöku skúrir. Kólnar heldur fyrir norðan.
Á fimmtudag:
Útlit fyrir norðlæga átt með rigningu og jafn vel slyddu fyrir norðan, en þurrviðri syðra. Fremur svalt í veðri.