Viðvörun vegna norðanhvassviðris eða -storms um jólahátíðina

Á vef Almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra er vakin athygli á slæmri veðurspá frá Veðurstofu Íslands um jólahátíðina. Spáð er norðanhvassviðri eða -stormi (vindhraða 15-23 m/s) víða um land á aðfangadag, jóladag og fram á annan í jólum. Veðrinu fylgir talsverð snjókoma og skafrenningur N- og A-lands og því hætt við að færð spillist á þeim slóðum. Á morgun, Þorláksmessu, gengur í norðaustanstorm með slyddu, en síðar snjókomu á Vestfjörðum og Ströndum.  Lögreglan á Vestfjörðum bendir á að ef veðurspá gengur eftir getur færð spillst mjög hratt.

Fólk er beðið um að vera ekki á ferðinni að nauðsynjalausu á meðan veðrið gengur yfir.  Þeim sem þurfa að vera á ferðinni er beint á að fylgjast vel með veðurspá, veðurathugunum og færð á vegum.

Þessu veðri, ef það gengur eftir, mun fylgja tilheyrandi ófærð og mögulega snjóflóðahætta á þeim svæðum sem eru útsett fyrir henni, samkvæmt því sem Almannavarnir segja.

Nánari upplýsingar er að finna á www.vedur.is og www.vegagerdin.is

Fleiri fréttir