Vilhelm Jensen hefur hafið störf hjá SSNV
Vilhelm Ívarsson Jensen hefur verið ráðinn verkefnastjóri fjárfestinga og atvinnuþróunar hjá Samtökum sveitarfélaga á Norðurlandi vestra og efur hann þegar tekið til starfa. Hann hefur aðsetur á starfsstöð SSNV á Sauðárkróki og með ráðningu hans eru starfsmenn samtakanna nú sjö.
Á vef SSNV segir að Vilhelm leiði fjárfestingaverkefni landshlutans en í því felst að kortleggja fjárfestingatækifæri á Norðurlandi vestra, vinna að framgangi þeirra og kynna þau fyrir innlendum og erlendum fjárfestum. Það gerir hann í samstarfi við sveitarfélög, fyrirtæki og aðra hagaðila. Þá veitir hann frumkvöðlum og fyrirtækjum atvinnuráðgjöf, meðal annars um stofnun og rekstur fyrirtækja, gerð viðskiptaáætlana, fjármögnun og þróun viðskiptahugmynda.
Vilhelm er viðskiptafræðingur með BS-próf frá Háskóla Íslands. Hann hefur fjölbreytta reynslu af fjármálum, rekstri, fjárfestingartengdum verkefnum, verkefnastjórnun og viðskiptaþróun innan sprota- og vaxtarfyrirtækja á Íslandi og í Kanada. Hann hefur starfað við fjármála- og viðskiptagreiningu hjá DRW og CWP Energy í Kanada og var fjármálastjóri hjá Guide to Iceland. Reynsla hans nær meðal annars til fjárhags- og rekstrargreiningar, áætlanagerðar og innleiðingar breytinga, auk upplýsingagjafar til stjórnar, stjórnenda, fjárfesta og annarra hagaðila. Hann hefur einnig tekið þátt í viðskiptahraðli og frumkvöðlastarfi.
Í tilkynningunni segir einnig að á næstunni verði Vilhelm í sambandi við starfandi fyrirtæki á svæðinu og við sveitarfélögin á Norðurlandi vestra. „Við biðjum fólk að taka vel á móti honum. Fyrirtæki og frumkvöðlar sem vilja ræða hugmyndir eða verkefni geta einnig haft samband við hann beint á netfangið vilhelm@ssnv.is.“
