Vilja að allur fiskur verði boðinn til sölu í uppboðskerfi fiskmarkaðanna sem seldur er á milli ótengdra aðila

Samtök fiskframleiðenda og útflytjenda áttu í síðustu viku fund með fulltrúum Fiskmarkaðs Suðurnesja, Fiskmarkaðs Íslands, Fiskmarkaðs Vestfjarða, Fiskmarkaðs Norðurlands og Reiknistofu Fiskmarkaða. Málefni fiskmarkaða landsins voru rædd og mikilvægi þeirra fyrir aukna verðmætasköpun í sjávarútvegi.

Í tilkynningu frá Samtökum fiskframleiðenda kemur fram að fundarmenn hafi verið sammála um að skora á stjórnvöld að tryggja að allur sá afli sem ekki kemur til vinnslu hjá samþættum útgerðar- og vinnslufyrirtækjum, þ.e. afli sem er seldur á milli ótengdra aðila, verði boðinn til sölu í uppboðskerfi fiskmarkaðanna. Fundurinn telur að með þessu móti megi tryggja að hæsta verð fáist fyrir þennan hluta auðlindarinnar, að sjálfstæðar fiskvinnslur hafi greiðan aðgang að hráefni og þjóðarhagur sé þar með hámarkaður.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir