Vilja að ráðherra beiti sér gegn ólöglegri atvinnustarfsemi innan ferðaþjónustunnar
Markaðsstofa Norðurlands skorar á Ragnheiði Elínu Árnadóttur, ráðherra ferðamála að beita sér þegar í stað og af hörku gegn ólöglegri atvinnustarfsemi innan ferðaþjónustunnar. Í ályktun sem stofan sendi frá sér segir að mikil þörf sé á markvissum aðgerðum yfirvalda til þess að sporna við ólöglegri starfsemi í ferðaþjónustu, einkum í tengslum við leyfislausa gistingu, bílaleigur og ferðaskipuleggjendur. Telur Markaðsstofa Norðurlands að ólögleg atvinnustarfsemin innan greinarinnar skekki mjög samkeppnisaðstöðu fyrirtækjanna og svertir orðspor ferðaþjónustunnar í heild sinni.
„Markaðsstofa Norðurlands hvetur til þess að ráðherra kalli þegar til samstarfs þá aðila sem koma að leyfisveitingum og eftirliti með ferðaþjónustufyrirtækjum svo sem skattayfirvöld, sýslumenn og Ferðamálastofu til þess að unnt sé að samræma aðgerðir og hrinda þeim í framkvæmd. Einnig vill Markaðsstofa Norðurlands beina þeim tilmælum til ráðherra að leyfismál innan ferðaþjónustunnar verði tekin til endurskoðunar með það að markmiði að gera ferlið allt einfaldara, skýrara og skilvirkara.
Oft var þörf en nú er nauðsyn, ferðaþjónusta er í örum vexti og fjöldi fyrirtækja innan greinarinnar vex samhliða. Smæð þeirra og fjöldi gerir að verkum að of mörg þeirra uppfylla ekki þau skilyrði sem almennt eru gerð til fyrirtækja og því er þörfin fyrir skilvirkt aðhald og eftirlit einkar mikil.
Tekjur ríkisins af ferðaþjónustu ættu að aukast í samræmi við umfang og vöxt ferðaþjónustu en það mun ekki gerast nema að þau fyrirtæki sem starfa innan ferðaþjónustu séu löglega starfandi í samræmi við lög og reglur,“ segir í ályktuninni.