Vilja að úthlutað verði allt að 20 þús. tonnum til makrílveiða á króka
Skalli félag smábátaeigenda á Norðurlandi vestra hélt aðalfund sinn þann 1. okt. í Framsóknarhúsinu á Sauðárkróki. Fjölmörg mál lágu fyrir fundinum og voru nokkrar tillögur samþykktar sem sendar verða til 28. aðalfundar Landssambands Smábátaeigenda, 18.-19. okt. nk.
1. Aðalfundur Skalla samþykkir að stærðarmörk krókaaflamarksbáta verði óbreytt – að hámarki 15 brúttótonn.
2. Aðalfundur Skalla tekur undir hugmyndir grásleppunefndar að dregið verði verulega úr sókn á næstu vertíð.
3. Aðalfundur Skalla krefst þess að ákvæði sem fjallar um umvitjun neta verði fellt úr gildi.
4. Aðalfundur Skalla leggur til að reglum um netafjölda við grásleppuveiðar verði breytt í samræmi við nýjar kröfur og tækni. Netafjöldi verði óbreyttur en miðaður við 2 menn í stað 3 hjá bátum þar sem grásleppan er skorin í landi og búnir eru niðurleggjara.
5. Aðalfundur Skalla tekur undir tillögur nefndar LS um frjálsar handfæraveiðar með þeirri viðbót að hægt sé að segja sig frá veiðunum um hver mánaðarmót.
6. Aðalfundur Skalla skorar á ráðherra að auka nú þegar veiðiheimildir í ýsu að lágmarki um 15 þús. tonn.
7.Aðalfundur Skalla hvetur ráðherra til að úthluta allt að 20 þús. tonn til makrílveiða á króka.