Vilja brenna allt að 250 tonn af sláturúrgangi á ári

SAH afurðir á Blönduósi. Mynd: KSE
SAH afurðir á Blönduósi. Mynd: KSE

SAH afurðir á Blönduósi hyggjast koma upp búnaði til eyðingar á áhættuvefjum úr sláturdýrum við sláturhúsið á Blönduósi. Gert er ráð fyrir að hægt yrði að brenna allt að 250 tonnum af úrgangi á ári.

Búnaðinum sem um ræðir yrði komið fyrir í gámi sem yrði eingöngu notaður til brennslu sláturúrgangs sem fellur til hjá fyrirtækinu. Drög að breyttum starfsleyfisskilyrðum fyrir sláturhús SAH vegna starfrækslu brennsluofns liggja nú frammi á skrifstofu Blönduósbæjar og á vef Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra.

Skipulagsstofnun hefur þegar gefið samþykki sitt fyrir uppsetningu á búnaðinum og telur að mengun frá útblæstri frá ofninum verði lítil, sem og ónæði af hans völdum. Þar veldur mestu að umfang afurða til brennslu er fremur lítið og eingöngu bundið við þann úrgang sem til fellur á staðnum. Þá telur Skipulagsstofnun ða fyrirhuguð uppsetning sé ekki líkleg til að hafa í för með sér umtalsverð umhverfisháhrif með tilliti til eðlis framkvæmdarinnar, staðsetningar hennar og eiginleika hugsanlegra áhrifa hennar.

Í auglýsingu frá Heilbrigðiseftirlitinu eru þeir sem telja sig málið varða hvattir til að kynna sér starfsleyfisskilyrðin og gera athugasemdir við þau ef þurfa þykir. Skriflegar athugasemdir þurfa að berast í síðasta lagi fyrir 20. júlí næstkomandi.

 

Fleiri fréttir