Vilja einnig skoða sameiningu Austur-Húnavatnssýslu í eitt sveitarfélag
Bæjarráð Blönduósbæjar tekur undir sjónarmið Húnavatnshrepps og samþykkir að leita eftir stuðningi og aðkomu annarra sveitarfélaga í Austur-Húnavatnssýslu um viðræður um sameiningu Austur-Húnavatnssýslu í eitt sveitarfélag. Þetta kom fram á bæjarstjórnarfundi Blönduósbæjar þann 24. janúar sl.
Bæjarráð Blönduósbæjar sendi Hreppsnefnd Húnavatnshrepps erindi þess efnis að skoðuð yrði sameining sveitarfélagana tveggja. Hreppsnefnd Húnavatnshrepps taldi hins vegar raunhæfari valkost að skoða stærri sameiningu, til dæmis sameiningu allra sveitarfélaga í Austur-Húnavatnssýslu, þ.e. Húnavatnshreppur, Blönduósbær, Skagabyggð og Sveitarfélagið Skagaströnd. Hér má skoða eldri frétt Feykis um málið.
Málið var tekið upp á bæjarráðsfundi Blönduósbæjar þegar svarbréf Húnavatnhrepps var tekið fyrir og var þá tekið undir sjónarmið Húnavatnshrepps, eins og fram kom hér að ofan.