Vilja ekki sameiningu heilbrigðisstofnanna á Norðurlandi
„Byggðasamlag um menningar og atvinnumál í A-Hún. leggst eindregið gegn áformum velferðarráðuneytisins um sameiningar heilbrigðisstofnanna á Norðurlandi og skorar á velferðarráðherra að taka þær til endurskoðunar.“ Þetta kemur fram í ályktun sem sveitarfélögin í Austur-Húnvatnssýslu sendu frá sér í dag.
„Á undanförnum árum hafa áform um sameiningar verið kynntar án þess að tekist hafi að sýna fram á hagræðingu eða bætta þjónustu. Það er mat A-Húnvetninga að með sameiningu stofnana sem nú er boðuð megi búast við enn frekari skerðingu á þjónustu og starfsemi Heilbrigðisstofnunarinnar á Blönduósi sem þegar er komin að þolmörkum bæði rekstrar- og þjónustulega.
Minna má á að á síðustu árum hefur stofnunin þurft að taka á sig mikinn samdrátt í fjárveitingum með tilheyrandi áhrifum á þjónustuna og ekki síst á starfsfólk heilbrigðisstofnunarinnar. Það verður seint þakkað hversu vel starfsfólk hefur staðið sig undir því mikla álagi sem fylgt hefur niðurskurði undanfarinna ára.
Stjórn byggðasamlagsins vill minna stjórnvöld á að samkvæmt nýbirtri skýrslu Hagfræðistofnunnar Háskóla Íslands, Breytingar á fjölda ríkisstarfsmanna í kjölfar efnahagshrunsins, kemur fram að í Húnavatnssýslum og Skagafirði hefur orðið hlutfallslega mesta fækkun starfa. Þetta gerist á sama tíma og stjórnvöldum má vera ljós veik staða þessara byggða sem birst hefur mönnum um langa hríð.
Heilbrigðisþjónusta er grunnþjónusta og það er mikilvægt að tryggja það að íbúar hafi aðgang að góðri heilbrigðisþjónustu heima í héraði. Í nútímasamfélagi er hún jafnframt ein af forsendum hverrar byggðar og því er skerðing hennar niður fyrir þolmörk aðför að forsendum hvers samfélags.
Stjórn byggðasamlagsins óskar eftir fundi með velferðarráðherra til að ræða stöðu heilbrigðismála í A-Hún,“ segir í ályktuninni.