Vilja framkvæmdaátak í vegamálum

Húni.is greinir frá því að þingmenn Sjálfstæðisflokksins hafi lagt fram þingsályktunartillögu á Alþingi um að ríkisstjórninni verði falið að efna til framkvæmdaátaks í vegamálum á árunum 2011-2013. Á því tímabili verði 22 milljörðum króna varið til verkefnisins sem viðbót við þau verkefni sem hafa verið ákveðin með fjárlögum 2011. Reykjabraut og Miðfjarðarvegur eru meðal verkefna sem nefnd eru í tillögunni.

Til að fjármagna verkefnið verði gefin út ríkisskuldabréf sem verði greidd á árunum 2016-2026.
Í greinargerð með tillögunni er yfirlit yfir þau verkefni sem Vegagerðin segir að hægt sé að hefja framkvæmdir við innan einhverra vikna eða mánaða (fjárhæðir í yfirlitinu eru ekki endanlegar). Þar á meðal eru verkefni í Húnaþingi eins og Miðfjarðarvegur (vegkaflinn Hringvegur-Staðarbakka, 4,5 km) en áætlaður kostnaður er um 150 milljónir króna og Reykjabraut (vegkaflinn Hringvegur-Svínvetningabraut, 7,2 km) þar sem áætlaður kostnaður er 164 milljónir króna. Þá er einnig nefndur Tindastólsvegur (vegkaflinn Þverárfjallsvegur-skíðasvæði, 4 km) en áætlaður kostnaður við þann vegkafla er 85 milljónir króna.

/Húni.is

Fleiri fréttir