Vilja kanna gildi þjóðvegar einn fyrir Húnavatns- og Skagafjarðarsýslur
Stjórn SSNV að undirlagi Ágústs Þórs Bragasonar á Blönduósi hefur samþykkt að fela SSNV atvinnuþróun að vinna úttekt á gildi þjóðvegar 1 um Húnvatns- og Skagafjarðarsýslur. Úttektin taki til þess að meta núverandi áhrif að legu vegarins á einstaka sveitarfélög með áherslu á áhrif þess á íbúaþróun og þjónustu innan svæðisins.
Þá verði lagt mat á kosti þess og galla að færa þjóðveg 1 þannig að hann liggi um Þverárfjall og í gegnum Sauðárkrók, yfir Hegranes og um Hóla í Hjaltadal og með jarðgöngum yfir í Eyjafjörð. Þá verði lækkun vegstæðis um Holtavörðuheiði tekin til sérstakrar skoðunar.
Skoða skal sérstaklega eftirtalda kosti við vegstyttingar og áhrif þeirra á
viðkomandi byggðir:
Stytting á leiðinni Borgarnes-Akureyri um allt að 25 km
Stytting á leiðinni Sauðárkrókur-Akureyri um allt að 35 km
Stytting á leiðinni Hólar- Akureyri um allt að 75 km
Vinnu við úttektina ljúki fyrir árslok