Vilja malbika Reykjarbraut
Á fundi hreppsnefndar Húnavatnshrepps sem haldinn var í síðustu viku var gerð samþykkt um samgöngumál í sveitarfélaginu en í samgönguáætlun 2007 -2010 var gert ráð fyrir 110 millj. kr. í endurgerð Reykjabrautar (724), frá hringvegi að Svínavatni.
Sumarið 2009 voru útboðsgögn tilbúin og verkið komið í auglýsingaferli þegar það var slegið af og frestað um óákveðin tíma. Í fjögurra ára samgönguáætlun 2009-2012 er gert ráð fyrir 380 millj. kr. í malbikun tengivega á landinu öllu, árið 2011 og 300 millj. kr. árið 2012.
Hreppsnefnd Húnavatnshrepps leggur þunga áherslu á að hluta af þessu framkvæmdafé verði varið til malbikunar á Reykjabraut (724) þegar á þessu ári. Framkvæmdir ættu ekki að þurfa langan undirbúningstíma þar sem útboðsgögn eru til staðar.
Hreppsnefnd Húnavatnshrepps óskar sem fyrst eftir fundi með yfirvöldum samgöngumála, til umræðu um ástand, viðhald og framkvæmdir vegna malarvega í sveitarfélaginu.