Vilja Safnarasafn

Hjónin Auðunn Sigurðsson og Berglind Björnsdóttir á Blönduósi hafa sent menningar og fegrunarnefnd bæjarins erindi þar sem þau leggja til að stofnað verði safn á Blönduósi sem haldi utan um muni hina ýmsu safnara á staðnum.

Einnig lögðu þau til að útbúinn yrði safnapassi sem gilda á inn á öll söfn bæjarins. Nefndin tók fyrir erindi þeirra hjóna og var ákveðið að boða þau á fund nefndarinnar við tækifæri.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir