Vilja skoða akstur nemenda í FNV

Nefndarmenn í fræðslunefnd Blönduósbæjar fengu á dögunum afrit af bréfi frá sveitarstjórn Skagastrandar þar sem óskað er eftir umfjöllun Blönduósbæjar um skólaakstur í Fjölbrautaskóla Norðurlands Vestra.

Fræðslunefnd Blönduósbæjar leggur til að þessi hugmynd verði skoðuð frekar og hvort fleiri möguleikar séu í stöðunni, sem gerir ungu fólki mögulegt að búa lengur í foreldrahúsum , en stunda samt framhaldsskóla nám.

Fleiri fréttir