Vilja skoða sameiningu við Húnavatnshrepp
Bæjarstjórn Blönduósbæjar vilja kanna möguleikana á sameiningu sveitarfélagsins við Húnavatnshrepp. Tillaga um úttekt á kostum og göllum sameiningar þess að sameina þessi tvö sveitarfélög í eitt var lögð fram á bæjarstjórnarfundi Blönduósbæjar þann 11. desember sl.
Í fundargerð segir að Blönduósbær og Húnavatnshreppur hafi nú þegar samstarf um mörg verkefni og starfað náið saman í mörg ár. Því sé rökrétt framhald á þeirri vinnu að skoða með hvaða hætti sameiginlegt sveitarfélag gæti tekist á við krefjandi verkefni sem framundan eru á næstu árum með það að markmiði að styrkja og efla byggð í Austur-Húnavatnssýslu.