Vilja styðja betur við barnshafandi konur af landsbyggðinni

Margar konur þurfa að dveljast langtímum fjarri heimabyggð til að hafa öruggt aðgengi að heilbrigðisþjónustu á meðgöngu og eftir fæðingu.  Mynd: Landspítali.is
Margar konur þurfa að dveljast langtímum fjarri heimabyggð til að hafa öruggt aðgengi að heilbrigðisþjónustu á meðgöngu og eftir fæðingu. Mynd: Landspítali.is

Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, og Svandís Svavarsdóttir,heilbrigðisráðherra, kynntu á ríkisstjórnarfundi á föstudag áform um skoða í sameiningu breytingar sem ætlað er að styðja betur við barnshafandi konur á landsbyggðinni og fjölskyldur þeirra. 

Í frétt á vef félagsmálaráðuneytisins segir að skipaður verði starfshópur sem ætlað er að móta og leggja fram tillögur að úrbótum, hvort sem er innan fæðingarorlofskerfisins eða með öðrum hætti. Mun starfshópurinn fara yfir aðstæður þessara kvenna með tilliti til staðsetningar fæðingarþjónustu á landsvísu en margar þeirra þurfa að dveljast fjarri heimabyggð, með tilheyrandi tilkosntaði, í nokkurn tíma til að hafa öruggt aðgengi að heilbrigðisþjónustu á meðgöngu og eftir fæðingu. 

Óskað verður eftir tilnefningum í þessa vinnu á næstu dögum en gert er ráð fyrir tveir formenn leiði hópinn, annar frá félags og barnamálaráðherra og hinn frá heilbrigðisráðherra að því er segir á vef félagsmálaráðuneytisins.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir