Viljum leggja okkar lóð á vogarskálarnar - Samstarf Olís og Björgunarbátasjóðs Húnaflóa

„Þjónustusvæði Húnabjargar telst vera mjög stórt, allur Húnaflóinn að Horni og síðan vestur á Skaga. Misjafnt er hversu margar ferðir við þurfum að fara á ári, þær eru hátt í tuttugu að meðaltali. Síðan bætast við reglulegar æfingar, enda kappkostum við að áhöfnin sé vel í stakk búin til að sinna starfi sínu og takast á við þau verkefni sem að höndum ber. Olíukostnaðurinn er stór liður rekstri skipsins og Olís hefur styrkt okkur mjög myndarlega, aðkoma fyrirtækisins hefur skipt sköpum fyrir rekstur skipsins,“ segir Reynir Lýðsson formaður Björgunarbátasjóðs Húnaflóa, sem á og rekur björgunarskipið Húnabjörgu á Skagaströnd.

 Þakklætisvottur

„Við hjá Olís fylgjumst eins og allir landsmenn með því fólki sem sinnir hjálparstarfi í frístundum sínum og hefur bjargað ótal mannslífum, oft við erfiðar og hættulegar aðstæður. Rekstur björgunarskipsins Húnabjargar er gott dæmi um samheldni íbúa við Húnaflóa í þessum efnum. Adolf Berndsen - okkar maður á Skagaströnd - hefur verið ötull talsmaður Húnabjargar og bent okkur á mikilvægi þessa öfluga björgunartækis. Okkar lóð á vogarskálarnar má túlka sem þakklætisvott fyrir gott og fórnfúst starf,“ segir Jón Ólafur Halldórsson framkvæmdastjóri sölusviðs Olís.

Ekki sjálfgefið

Reynir Lýðsson segir að ágætlega hafi gengið að fjármagna útgerð Húnabjargar.

„Við njótum sem betur fer velvilja meðal almennings, fyrirtækja og stofnana. Rekstur skipsins kostar sitt og við þurfum einfaldlega að hafa allar klær úti til að ná endum saman. Það er ekki sjálfgefið að fyrirtæki á borð við Olís styrki sjóðinn  svona myndarlega. Við erum þessa dagana íhuga kaup og öðru og minna björgunarskipi og bindum því vonir við áframhaldandi samstarf við Olís.“

Viljum létta róðurinn

„Ég vona sannarlega að annað björgunarskip bætist fljótlega í flotann við Húnaflóann. Með því að styrkja björgunarsveitir landsins er Olís vonandi að létta róðurinn. Samstarf fyrirtækisins og Björgunarbátasjóðs Húnaflóa hefur verið einstaklega ánægjulegt og ég bind vonir við að svo verði áfram,“ segir Jón Ólafur Halldórsson framkvæmdastjóri sölusviðs Olís.

/Viðtal: Karl Eskil Pálsson

Fleiri fréttir