Vilko í útrás – umfjöllun á N4
Fyrirtækið Vilko á Blönduósi var nýverið til umfjöllunar á sjónvarpsstöðinni N4 þar sem rætt var við framkvæmdarstjórann Kára Kárason og segir hann frá þeim vörum sem eru í framleiðslu hjá fyrirtækinu. Sumar hverjar hafa haldist óbreyttar svo áratugum skiptir en aðrar í vöruþróun. Einnig ræðir hann um fyrirhugaða útrás fyrirtækisins til Færeyja.
Að sögn Kára hafa hafa kakósúpurnar, bláberjasúpurnar og sætsúpurnar verið vinsælastar hjá Vilko í gengum tíðina en fyritækið hefur einnig framleitt Prima krydd um árabil. Þar er pizzakryddið langvinsælast og selst í tugum þúsunda um þessar mundir.
Salan á Prima kryddi hefur verið að aukast frá ári til árs og er í sífelldri vöruþróun. Mikil fræði eru í kringum kryddin og nefnir sem dæmi nýjasta krydd fyrirtækisins Húnagull þar sem saltið er húðað með olíu og fjarlægir því ekki safann úr kjötinu fyrir steikingu.
Fyrirtækið hefur alltaf haft það að leiðarljósi að uppskriftum fyrirtækisins er aldrei breytt þannig að neytandinn getur verið viss um að súpan sem hann fær sé samskonar og hann fékk jafnvel áratugum áður. „Þetta er í rauninni það sem gæðin ganga út á, að þú getir fengið nákvæmlega sömu vöruna aftur, aftur og aftur nákvæmlega eins,“ útskýrði Kári en það er m.a. gert með því að nota alltaf sama hráefnið og skipta við sömu birgja.
Fram kemur að fyrirtæki hafi verið markaðsráðandi á Ísland svo áratugum skiptir en nú er stefnan m.a. sett á Færeyjar. „Við ætlum nú að kenna Færeyjingum að borða Vilko vöfflur,“ sagði Kári en hann er mjög bjartsýnn á að Færeyjingar eiga eftir að taka þeim mjög vel.
Fyrirtækið seldi nýlega vöfflur til Hollands þar sem þær lentu í könnunarúrtaki, ásamt fleiri vöfflum, en að sögn Kára fengu þær vægast sagt mjög góða dóma og voru sagðar bestu vöfflurnar.
Hér má sjá innslagið frá N4.