Vilko undirbýr nýja vörulínu

Vilko ehf. á Blönduósi leitar að frjóu og hugmyndaríku fólki til að taka þátt í vöruhönnun fyrir nýja vörulínu sem áætlað er að setja á markað í vetur. Í auglýsingu í nýjasta tölublaði Gluggans auglýsir Vilko eftir slíku fólki og biður það að hafa samband við fyrirtækið.

Í auglýsingunni er áhugasömum bent á að hafa samband í síma 844 5288 eða senda nafn sitt og símanúmer á netfangið kari@vilko.is.

Fleiri fréttir