Villtist í víðavangshlaupi
feykir.is
Austur-Húnavatnssýsla
29.06.2015
kl. 11.05
Kona villtist af leið í víðavangshlaupi sem hófst í Húnaveri á laugardaginn. Björgunarsveitir úr Austur-Húnavatnssýslu og Skagafirði voru kallaðar út til að leita að henni og fannst hún heil á húfi nokkru seinna, eins og vefurinn huni.is segir frá.
Ætlunin var að hlaupa frá Húnaveri, upp Þverárdal, Laxárdal og víðar og svo til baka í Húnaver. Björgunarsveitarmenn voru í símasambandi við konuna og fengu hana til að bíða þar sem hún var og lýsa staðarháttum. Þannig var hægt að finna með ágætri nákvæmni hvar konan var staðsett. Hún fannst í Laxárdal þar sem hún sat og beið aðstoðar í ágætu veðri, segir ennfremur á huni.is.