Viltu fá erlendan starfsnema?

Hefur þú áhuga á að fá erlendan starfsnema í fyrirtækið þitt? Hefur þú áhuga á að starfa erlendis í tiltekinn tíma? GET mobile er Evrópuverkefni nokkurra landa sem hefur það markmið að hvetja fyrirtæki og einstaklinga til aukinna mannaskipta í Evrópu í gegnum Leonardo starfsmenntaáætlun Evrópusambandsins.

Vinnumálastofnun er tengiliður verkefnisins á Íslandi. Ef þú vilt vita meira, komdu þá á kynningarfund kl 12:00-13:00 í Farskólanum á Sauðárkróki, föstudaginn 1. nóvember. Boðið verður upp á súpu og brauð og eru allir boðnir velkomnir.

Fleiri fréttir