Vinabær Blönduóss í aðhaldi

Það er víðar en á Íslandi sem þrengir að í rekstri bæjarfélaga en það kom fram á síðasta fundi bæjarráðs Blönduóssbæjar að Nokia, vinabær Blönduósbæjar, er að endurskoða samvinnu og samskipti vinabæjanna þar sem efnahagsþrengingar steðja að bæjarfélaginu.

Bæjarstjóra var falið að svara bréfinu og fer það til kynningar í æskulýðs-og tómstundanefnd sveitarfélagsins.

Fleiri fréttir