Vinadagur í Höfðaskóla

Þessa vikuna eru þemadagar í Höfðaskóla á Skagaströnd með yfirskriftinni „Vináttudagar.“ Í gær og í dag vinna nemendur að ýmsum verkefnum tengdum vináttu og baráttu gegn einelti. Á morgun, föstudaginn 8.nóvember verður svo farin vináttuganga um bæinn. Sá dagur er helgaður baráttunni gegn einelti.

Í tilkynningunni kemur líka fram að ef sú ólíklega staða komi upp að veðurguðirnir verða ekki í góðu skapi þá sé skipulagið þannig til vara, að hittast í söng og leik í íþróttahúsinu klukkan 12.

Fleiri fréttir