Vindur fer vaxandi í dag

Vaxandi vindur á öllu landinu í dag. Norðaustan 13-18 m/s víða á norðvesturlandi og éljagangur en samkvæmt heimsíðu Vegagerðarinnar má búast við mjög takmörkuðu skyggni vegna skafrennings á öllu svæðinu. Nú er hálka, hálkublettir eða snjóþekja eru á vegum á Norðurlandi vestra og skafrenningur á Þverárfjalli, Öxnadalsheiði og á Siglufjarðarvegi. 

Samkvæmt spá Veðurstofu Íslands verður hvassast á annesjum í kvöld og él einkum við ströndina. Heldur hvassara og snjókoma síðdegis á morgun. Frost 0 til 8 stig, en mildara á morgun.

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á fimmtudag:
Hvöss norðaustanátt. Snjókoma fyrir norðan og rigning eða slydda á SA- og A-landi, en þurrt að mestu SV-til. Mun hægari og úrkomuminna síðdegis, en norðan stormur og snjókoma á Vestfjörðum. Hiti kringum frostmark.

Á föstudag:
Ákveðin norðanátt og snjókoma vestast, annars hægari breytileg átt og sums staðar él. Hiti kringum frostmark, en frost 1 til 6 stig í innsveitum.

Á laugardag:
Breytileg átt og víða él, en úrkomulítið NA-til. Frost 0 til 8 stig, kaldast til landsins.

Á sunnudag og mánudag:
Norðlæg átt og él, en bjartviðri á S-verðu landinu. Áfram kalt í veðri.

Fleiri fréttir