Vinir í vestri - Líf og starf meðal Vestur-Íslendinga

Mánudaginn 28.apríl kl 21 segir Atli Ásmundsson, fyrrverandi aðalræðismaður í Winnipeg frá lífi og starfi meðal fólks af íslenskum ættum í vesturheimi. Kynningin verður haldin í Eyvindarstofu á efri hæð Veitingastaðarins Pottsins á Blönduósi og er aðgangur ókeypis.

"Mikill fjöldi Íslendinga, sem sótt hefur Winnipeg heim á undanförnum árum og kynnst Atla og eiginkonu hans, Þrúði Helgadóttur, ber þeim einstaka sögu og víst er að hið sama má segja um hið fjölmenna samfélag Vestur Íslendinga sem hefur þau hjón í miklum metum.

Það er sérstök reynsla að sækja Íslendingaslóðir í Kanada heim. Íslenskt skyr er selt í búðum undir því heiti, sumar götur bera alíslensk nöfn, fólk af þriðju og fjórðu kynslóð talar reiprennandi íslensku og fyrir framan þinghúsið í borginni er stytta af Jóni Sigurðssyni forseta.

Á engan er hallað þótt fullyrt sé að enginn eigi meiri þátt í endurreisn samstarfs milli Íslands og Nýja Íslands en Atli Ásmundsson, en hann starfaði ötullega að uppbyggingu íslenskrar ræðisskrifstofu þar um nokkurra ára skeið í utanríkisráðuneytinu áður en hann fluttist þangað sjálfur ásamt eiginkonu sinni. Á undanförnum árum hafa Atli og Þrúður nýtt tækifærið í heimsóknum sínum hingað til lands og flutt fjölda fyrirlestra og erinda um Íslendingaslóðir og jafnan fyrir fullu húsi.

Íslendingar eru ekki fjölmenn þjóð og það var mikil blóðtaka þegar stór hluti þjóðarinnar fluttist brott í vesturferðum forðum tíð. Í því ljósi er einkar mikilvægt að hlúa að menningararfi okkar á þeim slóðum þar sem landar okkar settust að og varðveita þau einstöku samskipti sem ætíð hafa verið milli gamla og nýja landsins. "

 

Fleiri fréttir