Vinna hörðum höndum við að bjarga fé undan snjó - uppfærð frétt
Björgunarsveitamenn Húnavatnssýslum, líkt og víðar, vinna hörðum höndum við að bjarga fé undan snjó. Svo virðist sem umfang vandans hafi verið mun meira en áður var talið, samkvæmt heimasíðu Landsbjargar.
Í Sauðadal er mikill snjór og færi þungt en þar voru um 15 björgunarsveitamenn að bjarga fé úr snjó.
„Hluti þess var fenntur í kaf. Talið er að búið sé að bjarga megninu af því fé sem var í hættu þar,“ segir á síðu Landsbjargar.