Vinna úr gögnum um áhrif virkjunar Blöndu

Húni.is segir frá því að eins og áður hefur komið fram í fréttum veitti samfélagssjóður Landsvirkjunar Laxasetri Íslands á Blönduósi styrk til að taka saman upplýsingar um áhrif virkjunar Blöndu á vatnasvæði árinnar. Markmiðið er að gera aðgengileg gögn um áhrif Blönduvirkjunar á veiði í ánni og ýmsar aðrar breytingar sem orðið hafa á Blöndu í kjölfar virkjunarinnar.

 

Á vef Ríkisútvarpsins er fjallað um þetta og sagt frá því að úrvinnsla á gögnunum sé að hefjast. Þar kemur fram að miklar rannsóknir hafi verið gerðar á vatnasvæði Blöndu þegar ráðist var í Blönduvirkjun. Bæði á undirbúningstíma virkjunarinnar, á virkjunartímanum sjálfum og fyrstu árin þar á eftir. Mikið af gögnum er því til frá þessum tíma.

Valgarður Hilmarsson hjá Laxasetrinu segir í samtali við Ríkisútvarpið að þeir ætli að vera með sýnishorn inni á Laxasetrinu og síðan verði frekari upplýsingar á vef setursins. Valgarður segir augljósustu áhrifin á Blöndu þau að áin sé í dag nánast tær á ákveðnum tímum, en hafi fyrir virkjun verið mjög lituð allt sumarið. Veiðin í ánni hafi því breyst mikið til batnaðar. En Blönduvirkjun hafi trúlega haft neikvæðari áhrif á veiðina í vötnum inni á hálendinu. Valgarður segist hafa grun um að hún hafi minnkað sumstaðar en ekki breyst mjög mikið annars staðar, það sé misjafnt og spurningin sé hvað veldur. „Þetta er í rauninni skemmtilegt verkefni að skoða.“

Fleiri fréttir