Vinningshafar í stimplaleik á Sögulegri safnahelgi

Helgina 8.-9. október sl. var haldin Söguleg safnahelgi á Norðurlandi vestra í tengslum við ferðaþjónustuverkefnið Huggulegt haust. Alls tóku átján söfn/setur/stofnanir þátt í safnahelginni og voru með opið hús annan eða báða dagana. Yfir eitt þúsund heimsóknir voru skráðar þessa tvo daga á þeim stöðum sem opið var.

Einn þáttur í Sögulegri safnahelgi var stimplaleikur þar sem allir þeir sem heimsóttu a.m.k. fjögur söfn lentu í lukkupotti og síðan voru dregnir út þrír vinningshafar. Þeir eru:

1. verðlaun – Unnur Arnardóttir, Blönduósi. Í hennar hlut kom stafræn myndavél frá Panasonic að verðmæti 25.000 kr.
2. verðlaun – Anna Solveig Scheving, Hvammstanga. Hún fékk gjafabréf fyrir tvo á veitingahúsið Pottinn á Blönduósi að verðmæti 10.000 kr.
3. verðlaun – Sigríður Tryggvadóttir, Hvammstanga. Verðlaunin eru ókeypis aðgangur fyrir fjölskylduna  sumarið 2012 inn á öll söfn og setur sem tóku þá í safnahelginni.

Aðstandendur Sögulegrar safnahelgi þakka öllum þeim sem tóku þátt í þessum viðburði.

/Fréttatilkynning

Fleiri fréttir