Vinnustofa um gerð loftlagsstefnu sveitarfélaga

Frá vinnustofunni á Hvammstanga. MYND: SSNV
Frá vinnustofunni á Hvammstanga. MYND: SSNV

SSNV stóð fyrir vinnustofu í félagsheimilinu á Hvammstanga nú í vikunni um gerð loftlagsstefnu sveitarfélaga í samtarfi við KPMG. Vinnustofan var sérstaklega fyrir Húnavatnssýslur. Góð þátttaka var á vinnustofunni og áhugaverðar umræður sköpuðust.

„Loftslagsstefna vísar til aðgerða stjórnvalda og reglugerða sem miða að því að takast á við loftslagsbreytingar, draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og stuðla að sjálfbærum starfsháttum. Þetta nær yfir margs konar ráðstafanir, þar á meðal að setja losunarmarkmið, innleiða hvata fyrir endurnýjanlega orku og efla orkunýtingu,“ segir í frétt á vef SSNV.

Verkefnið er styrkt af umhverfis-, orku, og loftlagsráðuneytinu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir