Vinnustofur vegna umsókna í Uppbyggingarsjóð

 

Í næstu viku munu starfsmenn SSNV verða með vinnustofur á öllum þéttbýlisstöðum á Norðurlandi vestra þar sem boðið verður upp á einstaklingsaðstoð við gerð styrkumsókna til Uppbyggingarsjóðs. Í viðtalstímunum verða veittar upplýsingar um styrkmöguleika, auk almennrar aðstoðar í tengslum við atvinnu- og menningarstarfsemi. 

 

Vinnustofurnar verða sem hér segir:

Mánudag 5. nóvember klukkan 15-18            Fundarsalur, Hnjúkabyggð 33, Blönduósi.

Þriðjudag 6. nóvember klukkan 10-12            Hótel Varmahlíð.
                                         klukkan 10-12            Vesturfarasetrið, Frændgarður á Hofsósi.
                                         klukkan 14-18            Kaffi Krókur, Sauðárkróki.

Miðvikudag 7. nóvember klukkan 15-18        Skrifstofa SSNV, Höfðabraut 6, Hvammstanga.

Fimmtudag 8. nóvember klukkan 15-18        Skrifstofa SSNV, Einbúastíg 2, Skagaströnd.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir