VINSAMLEGAST VERIÐ EKKI Á FERÐINNI AÐ ÓÞÖRFU
Félagar hjá Björgunarsveitinni Strönd á Skagaströnd lögðu af stað um kl. 21:00 í kvöld til að aðstoða bíla á Þverárfjalli. Vilja þeir koma því á framfæri að það er snælduvitlaust veður á leiðinni frá Skagaströnd og inn að Laxárbrú. Á Fésbókarsíðu þeirra stendur með stórum stöfum: VINSAMLEGAST VERIÐ EKKI Á FERÐINNI AÐ ÓÞÖRFU.
Það eru nú um og yfir 27 m/s á Þverárfjalli og meira í hviðum. Á Skagaströnd er 23-25 m/s og 35 m/s í hviðum.
Samráðsfundur vegna veðurs
Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra boðaði til samráðsfundar í dag vegna slæms veðurútlits yfir jólin. Viðbragðsaðilar og þjónustuaðilar tengdir orku og fjarskiptamálum auk Veðurstofu og Vegargerðarinnar fylgjast grant með framvindunni og manna flestir aðilar vaktir yfir hátíðirnar. Vegna mikillar úrkomu má búast við að færð muni spillast hratt og ekkert útlit er fyrir að gefi til ferðalaga á Vestfjörðum og Norðurlandi næstu daga. Veginum á milli Ísafjarðar og Súðavíkur verður lokað kl 20:00 í kvöld vegna snjóflóðahættu. Vegurinn um Ólafsfjarðarmúla mun sennilegast loka fyrir kvöldið. Fólk er beðið um að vera ekki á ferðinni og fylgjast vel með upplýsingum frá Vegagerðinni og Veðurstofu Íslands.