Vísnasafn Óskars Sigurfinnssonar í Meðalheimi gefið út á hljóðdiskum

Feykir sagði frá því fyrir skömmu að fjölskyldan í Meðalheimi á Ásum í Austur Húnavatnssýslu hafi látið taka saman þó nokkuð af kveðskap Óskars Sigurfinnssonar, bónda í Meðalheimi og það skráð á tölvutækt form af Árna Geirhirti Jónssyni frá Fremstafelli. Feykir hafði samband við fjölskylduna í Meðalheimi og forvitnaðist örlítið um Óskar.

Óskar er fæddur á Kornsá í Vatnsdal 29. ágúst 1931, en flyst barnungur með foreldrum sínum að Hurðabaki á Ásum. Á sjöunda aldursári gerist hann vikadrengur hjá Júlíusi Frímannssyni bónda í Meðalheimi. Eftir að Júlíus hætti búskap var Óskar vinnumaður hjá Helga Sveinbjörnssyni og Helgu Lárusdóttur sem bjuggu í Meðalheimi og síðan nokkur ár vinnumaður á Torfalæk. Árið 1958 kaupir Óskar Meðalheim ásamt Birni bróður sínum, kaupir svo af Birni 1964 og hefur búið þar ásamt eiginkonu sinni Guðnýju Þórarinsdóttur langt til þessa dags.

Óskar byrjaði snemma að gera vísur, en lét lítið yfir þeim hæfileika lengi framan af ævi, en brátt fengu vísur hans fætur og flug svo engum vörnum var þar viðkomið. Ógjörningur er að hafa tölu á þeim samkomum sem Óskar hefur setið sem hagyrðingur, enda var sérstaða hans strax þekkt fyrir sakir óvanalegrar kímni og fádæma hæfileika til að sjá skoplega fleti á viðfangsefninu.

Fyrir atbeina fjölskyldunnar í Meðalheimi var ákveðið að reyna að ná saman sem mestu af kveðskap hans, en líkt og margir hagyrðingar, þá hefur Óskari ekki verið sérlega tamt að halda utan um efni sitt. En með vilja og vinnu fjölmargra þeirra sem best þekkja til Óskars, þá lánaðist að ná saman lunganum af kveðskap hans. Efninu var svo safnað og það skráð á tölvutækt form af Árna Geirhirti Jónssyni frá Fremstafelli. Efnið var síðan lesið inn á tvo hljóðdiska og þeir fjölfaldaðir og fyrirkomið í vönduðu diskaumslagi.

Ógjörningur er að gera upp á milli andlegra afkvæma Óskars, en þessar alkunnu vísur hans sem hér fylgja hljóta að gefa góða innsýn í yfirburða hæfni hans til vísnagerðar.

Í gestabók skálans á Hveravöllum orti Óskar þessa þekktu hringhendu á árinu 1959: 

Hérna fyrst um fjallaveg
fékk ég lyst að una,
þótti vistin þægileg,
-þökk fyrir gistinguna.

Óskar kynnti sig á hagyrðingasamkomu í Húnabúð með þessari vísu: 

Lítinn hef ég ljóðaforðann,
líka á þessum stað.
Ég heiti Óskar, og er að norðan,
-ekki meir um það.

Og við annað tækifæri kynnti hann sig þannig: 

Ennþá læt ég á mér níðast
inni á þessum stað.
Ég heiti Óskar eins og síðast;
-ekki meira um það.

Þriðja kynningarvísa Óskars var þessi: 

Enn ég svara ef einhver spyr,
ýmsu þó ég gleymi,
ég er ennþá eins og fyr
Óskar í Meðalheimi.

Nokkurt upplag af útgáfunni er til afgreiðslu hjá fjölskyldunni í Meðalheimi og geta áhugasamir haft samband í síma 452 4263, Guðný, eða í síma 895 6866, Júlíus. Ennfremur er hægt að hafa samband á netfangið: medalheimur@emax.is.

Áður birst í 17. tbl. Feykis 2020

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir