Vöfflusunnudagar til sælu í sumar
Laxasetur Íslands á Blönduósi hélt Íslenska Safnadaginn hátíðlegan sl. sunnudag og bauð gestum upp á kaffi og vöfflur í formi fiska af tilefni dagsins. Í kjölfarið hefur Laxasetrið sent frá sér eftirfarandi fréttatilkynningu:
„Við fengum frábærar viðtökur á Íslenska Safnadaginn síðastliðinn sunnudag, og af því tilefni höfum við ákveðið að hafa vöfflur og heitt á könnunni alla sunnudaga í sumar!“ segir í fréttatilkynningu frá Laxasetrinu.