Vordagar nemenda Húnavallaskóla
Síðustu daga hafa nemendur Húnavallskóla notið vorkomunnar og samkvæmt heimasíðu skólans hafa krakkarnir verið á ferðalagi vítt og breitt um Vestur- og Norðvestur landið.
1. – 4. bekkur heimsótti Skagafjörðinn. Þar skoðuðu þau Víðimýrarkirkju og Glaumbæ, á heimleiðinni var stoppað í Dalsmynni þar sem borðaðar voru pylsur og leikið.
5. – 7. bekkur skelltu sér í Borgarfjörðinn. Þau heimsóttu Reykholt og Hvanneyri, en að lokum var farið í sund og pitsuveislu í Borgarnesi.
8. og 9. bekkur heimsóttu Snæfellsnes. Þau fóru í siglingu um Breiðafjörð, sund í Stykkishólmi og fjöruna við Búðir. Krakkarnir gengu frá Arnarstapa að Hellnum og skoðuðu Djúpalónssand. Að síðustu var komi við í Bjarnarhöfn en gist var í Lýsuhólsskóla, þar sem vel var tekið á móti hópnum.
- Myndir frá vorþema og vorferð 1.-4. bekkjar má skoða á heimasíðu skólans.
- Hér eru myndir frá ferðalagi 5.-7. bekkjar.
- Myndir frá ferðalagi 8. og 9. bekkjar.