Vorferð húnvetnskra kúabænda
Fyrirhuguð er ferð húnvetnskra kúabænda í Skagafjörð 15. apríl næstkomandi þar sem heimsótt verða fyrirtæki og stofnanir eins og fyrirtæki Kaupfélags Skagfirðinga, Verið rannsóknasetur, Sjávarleður, Stoð verfræðistofu og skoðað nýtt fjós að Hamri í Hegranesi. Í lokin verður kvöldverður í boði Kaupfélags Skagfirðinga.
Brottför verður frá Mjólkurstöðinni á Blönduósi kl. 9.30 og stefnt að heimkomu þangað aftur kl. 19.00 til 19.10 ! Ekið verður um Þveráfjall.
Núverandi og fyrrverandi kúabændur ásamt nautakjötsframleiðendum hvattir til þátttöku og tilkynnist hún Brynjólfi á Brandsstöðum, sími 861 7440 og 452 7140 og Jóhannesi á Torfalæk, sími 861 4287 og 452 4287, fyrir 11. apríl.