Vortónleikar Tónlistarskóla A-Hún.
Komið er að lokum hjá Tónlistarskóla A- Hún. en vortónleikar skólans verða á Skagaströnd í dag, þriðjudaginn 3. maí og hefjast kl. 17:00 í Hólaneskirkju. Á morgun, miðvikudaginn 4. maí verða tónlekar á Blönduósi kl. 17:00 í Blönduósskirkju.
Allir eru velkomnir enda gaman að sjá og heyra hvað börnunum hefur farið fram í vetur. Skólaslit verða síðan laugardaginn 21. maí kl. 15:00 í Blönduósskirkju.